Hugræn atferlismeðferð við fíknivanda
Námskeiðið byggir á hugrænni atferlismeðferð sem er gagnreynd nálgun í meðferð fíknivanda, áhersla er lögð á að kenna hagnýta færni sem nýtist í daglegu lífi. Markmiðið er ekki einungis að draga úr eða hætta notkun, heldur að byggja upp líf sem gerir hana síður nauðsynlega.
Fyrirkomulag námskeiðsins Í upphafi námskeiðsins er unnið með ákvörðun um breytingu og áhugahvöt, þar sem skoðaðir eru kostir og gallar notkunar og hvað felst í því að hætta. Farið er yfir stig breytinga og hvernig áhugahvöt getur verið breytileg yfir tíma. Í framhaldinu er kynnt hugræn atferlismeðferð og hvernig hún nýtist við fíknivanda, þar á meðal hvernig hugsanir, tilfinningar og hegðun tengjast og hvernig ávanabindandi hegðun þróast og viðhelst.
Mikil áhersla er lögð á að vinna með hugsanamynstur sem ýta undir notkun, svo sem svokallaðar leyfishugsanir („bara í kvöld“, „bara eitt skipti“) og væntingar um áhrif efna. Þátttakendur læra að endurmeta hugsanir sínar á gagnrýninn og sveigjanlegan hátt og taka meðvitaðri ákvarðanir. Einnig er unnið með kveikjur, bæði innri og ytri, og þátttakendur læra að þekkja aðstæður sem auka áhættu og hvernig hægt er að bregðast við þeim með markvissum hætti.
Á námskeiðinu eru kennd fjölbreytt bjargráð til að takast á við löngun og vanlíðan, þar á meðal aðferðir til að fresta og trufla hegðun, atferlisvirkjun, slökun og líkamsmiðaðar æfingar, hugsanaskráning og svokölluð „urge surfing“. Einnig er unnið með bakslag sem ferli fremur en einstakan atburð, þar sem lögð er áhersla á að draga úr skömm og „allt tapað“ hugsun og í staðinn auka skilning á því hvernig bakslag þróast og hvernig má grípa inn í fyrr í ferlinu.
Fyrir hverja? Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem áhuga hafa á að láta af hvers konar fíknitengdri hegðun hvort sem um ræðir notkun á áfengi, vímuefnum, mat, sígarettum, veðspilum, kláms o.f.l.
Tími Námskeiðið er átta vikur að lengd og er kennt einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn. Gert er ráð fyrir að þátttakendur verji 10-15 mínútum á dag í heimavinnu á meðan á námskeiðinu stendur.
Verð 115,000 kr,-. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna námskeiða. Ég hvet fólk til að kanna rétt sinn til endurgreiðslu.
Eftir þetta námskeið munu þátttakendur hafa öðlast:
Aukinn skilning á hugrænum, tilfinningalegum og atferlislegum þáttum sem viðhalda fíknivanda
Færni í að greina innri og ytri kveikjur og áhættuaðstæður
Þjálfun í hugrænu endurmati og auknum sveigjanleika í hugsun
Hagnýtar aðferðir til að takast á við löngun (e. craving) og tilfinningalega vanlíðan
Skýrari skilning á bakslagi sem ferli og getu til að greina snemmbúin viðvörunarmerki
Persónulega bakslagsforvarnaráætlun (e. relapse prevention plan)
Aukna sjálfseflingu og trú á eigin getu.